Börn
Náttföt, bolir, buxur, húfur, lambhúshettur, hálskragar, sokkar og hanskar úr merinó og bambus. Náttúruleg efni næst húðinni, frá ungbarnastærðum og upp úr.
Merinóull jafnar út hita, svo barnið ofhitnar ekki inni og verður ekki kalt úti. Hún andar vel, er náttúrulega lyktarhamlandi og heldur hita þótt hún blotni. Bambus er svalari viðkomu, silkimjúkur og hentar viðkvæmri húð og exemi sérstaklega vel.
Engir harðir saumar, engar merkingar sem klóra. Þunnu lögin passa undir hjálm og útigalla án þess að þrengja að.